Vinstri grænir og óháðir í heimsókn

Frambjóðendur Vinstri grænna og óháðra, þau Þröstur Þór Ólafsson og Hjördís Garðarsdóttir, heimsóttu Höfða í dag. Þau ræddu við íbúa og starfsmenn og kynntu stefnumál Vinstri grænna og óháðra í bæjarstjórnarkosningunum í vor.