16. mars 2026
Á rúntinum með Kidda Jens

Á hverjum miðvikudegi hittist hópur fólks á Bókasafni Akraness til að fara yfir valdar myndir úr Ljósmyndasafni Akraness og bera kennsl á það sem fyrir augu ber í þeim tilgangi að bæta skráningar safnsins. Á fimmtudögum fara íbúar og gestir á Dvalarheimilinu Höfða yfir sömu myndir.
Ljósmyndafundunum stjórnar Kristinn Jens Kristinsson eða Kiddi Jens. "Það verður að vera gaman," segir Kiddi og það markmið hefur sannarlega tekist því fundirnir eru orðnir hápunktur vikunnar hjá mörgum sem þangað mæta.
Í meðfylgjandi myndbandi, sem var tekið upp snemma í vetur, förum við á rúntinn með Kidda Jens og heimsækjum með honum bæði Bókasafnið og Höfða.
Sjón er sögu ríkari! Horfa á Myndband