Matseðill

Á Höfða er allur matur matreiddur í eldhúsi heimilisins og matseðill unninn í samvinnu við næringarfræðing með heilsu íbúa að leiðarljósi. Leitast er við að bjóða upp á fjölbreyttan, hollan og staðgóðan íslenskan mat. Það er eldað alla daga í eldhúsi Höfða fyrir heimilisfólk, fólk í dagdvöl, eldra fólk sem mætir í hádeginu og vegna matarskammta sem sendir eru úr húsi.

Eldra fólk á þjónustusvæði Höfða getur keypt hádegismat alla daga vikunnar og borðað í matsal Höfða kl. 12:30. Greiða þarf með matarmiðum sem keyptir eru á skrifstofu Höfða og er verð pr. miða 1.593 kr. árið 2026.