7. mars 2026
Alzheimerkaffi á Höfða

Alzheimerkaffi á Akranesi á vegum Alzheimer samtakanna þann 19.mar.2026
Fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 17:00-18:30 verður haldið Alzheimerkaffi í hátíðarsal Höfða á Akranesi.
Gestur verður Gunna Stella höfundur bókarinnar Amma nammigrís. Hún segir sína sögu og frá bókinni sem er um ömmu sem hoppar á trampólíni, gerir kollhnísa og getur borðað ótrúlegt magn af nammi. Það sem er hinsvegar farið að gerast hjá ömmu í dag er að hún er farin að gleyma. Amma er með Alzheimer.
Kaffið er fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.
Í boði er lifandi tónlist og kaffiveitingar (kaffigjald 500 kr.).
Engin þörf er á að skrá sig - bara mæta!