23. júní 2026

Fengu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í íslenskunámi

Þrír starfsmenn Höfða fengu á dögunum verðlaun fyrir frábæran árangur í íslenskunámi sem þeir stunduðu í gegnum stafrænu íslenskukennslulausnina Bara tala.

Í lausninni æfir starfsfólk sig í starfstengdum orðaforða og samtölum sem nýtast beint í daglegum störfum. Alls eru 36 virkir nemendur hjá Akraneskaupstað, þar sem Höfði telst með, og á síðustu 12 mánuðum hafa þeir að meðaltali lært í rúmar 19 klukkustundir sem er sannarlega glæsilegur árangur.

Marah Khaddaj (til hægri á mynd) fékk viðurkenningu fyrir að ljúka sumaráskorun sem mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar setti upp í appinu. Þá hlutu Laima Linares Hurtado (til vinstri á mynd) og Rosemarie Magbanue (í miðju á mynd) viðurkenningar fyrir að hafa lokið á bilinu 30-75 klukkustunda lærdómi í Bara tala.

Nánar má lesa um viðurkenningarnar á heimasíðu Akraneskaupstaðar.