28. september 2026

Heyrnarmælingar og heyrnartækjaþjónusta á Höfða 12. október

Heyrnartækni verður með heyrnarmælingar og heyrnartækjaþjónustu á Höfða þann 12. október. Þjónustan er opin öllum og hægt er að panta tíma í síma 568 6880.

Mánudaginn 12. október verður boðið upp á heyrnarmælingar og heyrnartækjaþjónustu  í samstarfi við Heyrnartækni.

Þjónustan er opin öllum sem hafa áhuga á að fara í heyrnarmælingu eða fá ráðgjöf varðandi heyrnartæki og heyrnarlausnir.

Staður: Dvalarheimilið Höfði, Sólmundarhöfða 5, Akranesi
Dagsetning:
12. október

Nánari upplýsingar og tímapantanir:
Sími 568 6880

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu til að hafa samband og panta tíma.