7. mars 2026

Höfði auglýsir eftir umsjónarmanni fasteigna

Hjúkrunar-og dvalarheimilið Höfði auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna.

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem snýr að rekstri og viðhaldi fasteigna heimilisins.


Sótt er um starfið á alfreð.is.



Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegt eftirlit með húsnæði og aðstöðu (innan- og utanhúss)
  • Fyrirbyggjandi viðhald og minni háttar viðgerðir
  • Umsjón með tækjabúnaði og grunnkerfum (t.d. loftræsting, brunakerfi, aðgangsstýringar, lyftur – í samstarfi við þjónustuaðila)
  • Móttaka og úrvinnsla viðhalds- og bilanatilkynninga (skráning, forgangsröðun, eftirfylgni)
  • Umsjón með þjónustusamningum og samskipti við verktaka/þjónustuaðila
  • Umsjón með sorpmálum
  • Utanumhald með umhirðu lóðar
  • Viðhald tækja og búnaðar
  • Úttekt á ástandi fasteigna og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlunar
  • Yfirumsjón með öryggis-og brunavörnum.
  • Aðstoð við uppsetningu/tilfærslur á húsgögnum og búnaði eftir þörfum
  • Tilfallandi afleysing í akstri með íbúa og einstaklinga í dagdvöl.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðnmenntun (húsasmíði, rafvirkjun, pípulagnir, málun)
  • Reynsla af húsumsjón/viðhaldi fasteigna er æskileg
  • Þekking á tæknikerfum fasteigna er æskileg. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund. 
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf fasteigna
  • D1 meirapróf er kostur


Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Starfshlutfall er 100%.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri. Netfang: valdis@dvalarheimili.is, sími: 433-4302.