7. maí 2026
Lionsklúbburinn Eðna færir Höfða veglegar gjafir

Lionsklúbburinn Eðna kom færandi hendi á hjúkrunarheimilið Höfða þann 6. maí 2026 þegar fulltrúar frá líknarnefnd klúbbsins færðu hjúkrunarsviði heimilisins seglalyftara og tvær loftdýnur að gjöf. Þá fékk dagdvöl Höfða einnig nýjar sessur.
Það er einstaklega ánægjulegt að finna þann hlýhug og velvild sem hjúkrunarheimilið Höfði nýtur í samfélaginu og eru Lionskonum færðar innilegar þakkir fyrir þessar nytsamlegu og veglegu gjafir.
Nýr búnaður mun koma að mjög góðum notum og bæta aðstöðu og vellíðan íbúa og dagdvalargesta.
Á myndinni eru (frá vinstri): Sóley Sævarsdóttir húsmóðir (Höfði), Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri (Höfði), Helga
Jónsdóttir deildarstjóri dagdvalar (Höfði), Kristbjörg, Sigurðardóttir (Lions), Sólrún Engilbertsdóttir (Lions), Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir (Lions, formaður) og Sonja F. Jónsson (Lions).