10. apríl 2026

Lionsklúbburinn gefur vatnsvél

Lionsklúbbur Akraness hefur fært Höfða vatnsvél að gjöf. Vélin er staðsett á fyrstu hæð, fyrir framan dagdvölina, og er kærkomin uppfærsla frá vatnskönnunni sem áður var þar.

Mikilvægt er að drekka nóg vatn og því gleðilegt að geta boðið íbúum og gestum að fá sér ískalt og ferskt vatn hvenær sem er í sameign Höfða.

Höfði þakkar Lionsklúbbi Akraness kærlega fyrir að hugsa til Höfða og færa heimilinu góða gjöf.


Á meðfylgjandi mynd tekur Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Höfða, formlega á móti gjöfinni fyrir hönd heimilisins. Gjöfina afhenti Valdimar Þorvaldsson, fulltrúi Lionsklúbbsins.