5. maí 2026
Alzheimerkaffi á Höfða

Alzheimerkaffi á Akranesi á vegum Alzheimer samtakanna þann
7. maí 2026
Fimmtudaginn 7. maí 2026 kl. 17:00-18:30 verður haldið Alzheimerkaffi í hátíðarsal Höfða á Akranesi.
Gestir verða "Kellingarnar" sem gleða okkur með fróðleik og söng, auk Gísla Gísla og félaga sem mæta með nikkurnar og syngja okkur inn í sumarið.
Kaffið er fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.
Í boði er lifandi tónlist og kaffiveitingar (kaffigjald 500 kr.).
Engin þörf er á að skrá sig - bara mæta!