20. nóvember 2026
Heilakaffi á Höfða

Heilakaffi í Höfðasal – fimmtudaginn 26. nóvember
Við tökum smá forskot á aðventuna og komum saman í notalega jólastemningu í Höfðasal fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17:00.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur og Heiðdís Hanna Sigurðardóttir mun gleðja gesti með fallegum söng og koma okkur í jólaskap.
Við hvetjum alla til að mæta, njóta samverunnar og eiga saman notalega stund í aðdraganda jóla.
Kaffigjald er 500 kr.
Öll hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn er á vegum Heilahjálpar – samtaka um heilabilun.