16. nóvember 2026
Ný söngbók færð Höfða að gjöf

Akraneskirkja, Rótarýklúbbur Akraness og Lionsklúbbur Akraness færðu Höfða nýja söngbók að gjöf sem ber heitið „Verum glöð – söngbók Höfða“.

Akraneskirkja, Rótarýklúbbur Akraness og Lionsklúbbur Akraness færðu Höfða nýja söngbók að gjöf sem ber heitið „Verum glöð – söngbók Höfða“.
Bókin er sérstaklega ætluð íbúum Höfða og var tekin formlega í notkun við skemmtilega söngstund í Hátíðasalnum sunnudaginn 15. nóvember.
Sr. Ólöf Margrét, sr. Þóra og Hilmar organisti leiddu stundina og félagar úr Kór Akraneskirkju styrktu okkur í söngnum. Mæting var góð, gestir tóku vel undir og stemningin var bæði hlý og skemmtileg.
Söngur hefur lengi skipað stóran sess í félagsstarfi Höfða og vonum við að nýja bókin eigi eftir að verða mikið notuð við söngstundir og aðrar góðar samverustundir.
Við færum Akraneskirkju, Rótarýklúbbi Akraness og Lionsklúbbi Akraness innilegar þakkir fyrir þessa fallegu og nytsamlegu gjöf til íbúa Höfða.
Við hlökkum til að taka „Verum glöð“ áfram í notkun og eiga saman margar góðar söngstundir á Höfða.