7. júlí 2026

Sextíu ný hjúkrunarrými bætast við á Höfða

Stórum áfanga var náð þann 30. júní s.l. þegar félags- og húsnæðismálaráðuneytið og eigendur Höfða, Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit, skrifuðu undir samkomulag um stækkun Höfða um allt að 60 hjúkrunarrými. 


Samningurinn var undirritaður af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Steinari Adolfssyni bæjarstjóra og Haraldi Benediktssyni oddvita Hvalfjarðarsveitar, og við myndatöku var fagnað að hætti Ingu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


Höfði hefur verið einn af hornsteinum samfélagsins í næstum 50 ár og notið trausts og góðs orðspors í gegnum tíðina, ekki síst vegna starfsfólksins sem hefur lagt metnað og alúð í að veita íbúum góða og faglega umönnun. Því er það mikið gleðiefni að nú eigi að ráðast í þessa verulegu stækkun sem mun stytta bið eftir hjúkrunarrýmum á Höfða og gera heimilinu kleift að mæta vaxandi þörf í samfélaginu.


Nánar má lesa um málið í frétt á heimasíðu Akraneskaupstaðar.