7. maí 2026
Sinfóníuhljómsveit Íslands spilar á Höfða

Höfði mun njóta þeirra forréttinda að fá Sinfóníuhljómsveit Íslands í heimsókn föstudaginn 15. maí n.k. kl. 13:00, en þau ætla að koma við hjá okkur áður en hljómsveitin heldur tónleika í íþróttahöllinni að Jaðarsbökkum.
Sinfóníuhljómsveitin ætla að halda stutta tónleika fyrir íbúa og aðra gesti á Höfða og leyfa þannig enn fleirum að njóta í þessari heimsókn þeirra til Akraness. Við á Höfða færum þeim hjartans þakkir fyrir.