23. júní 2026

Starf verkefnastjóra þjónustu og reksturs laust til umsóknar

Tímabundið starf á skrifstofu Höfða

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði auglýsir tímabundið til eins árs, stöðu verkefnastjóra þjónustu  og rekstrar, lausa til umsóknar. Sótt er um á alfred.is.

Verkefnastjóri þjónustu og rekstrar gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri þjónustu, afgreiðslu og upplýsingagjöf Höfða. Starfið felur í sér móttöku gesta, skipulagningu viðburða, samskipti og þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra hagaðila, ásamt umsjón með ýmsum upplýsingamiðlum heimilisins.

Verkefnastjóri þjónustu- og rekstrar hefur jafnframt yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss og ber ábyrgð á ýmsum innkaupum rekstrarvara.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með almennri þjónustu við íbúa, skipulagningu viðburða og öðru tengt heimilishaldi.
  • Ábyrgð á afgreiðslu og ýmsum samskiptum við hagaðila.
  • Umsjón með innri og ytri upplýsingagjöf.
  • Yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss.
  • Fjárhagsleg ábyrgð í samræmi við fjárhagsáætlun, aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar og skýrslugerð þessu tengt.
  • Þátttaka í innleiðingu nýjunga og þróun verkferla til að bæta þjónustu og skipulag innan heimilisins.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Háskólamenntun er kostur.
  • Reynsla af mannaforráðum er kostur.
  • Reynsla af innkaupamálum eða rekstri er kostur.
  • Þekking eða reynsla af starfsemi hjúkrunarheimila eða heilbrigðisstofnana er kostur.
  • Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði, s.s. Word, Excel, Teams og Outlook.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar.
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.


Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er samkomulagsatriði, en miðað er við frá 70% upp í 100%. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Höfða, sími 844-3471, netfang: valdis@dvalarheimili.is.