3. júlí 2026
Tónleikar Guðrúnar Gunnars og Regínu Óskar vel sóttir

Í tilefni af írskum dögum 2026 mættu söngkonurnar Guðrún Gunnars og Regína Ósk á Höfða í gær og héldu mjög vel heppnaða tónleika fyrir íbúa og ýmsa gesti.
Tónleikarnir voru vel sóttir, en um 70 manns voru mættir til að hlýða á þessar söngdívur sem tóku fjölmörg lög og sögðu stórskemmtilegar sögur á milli laga eins og þeim einum er lagið.