Framtíðarsýn
Höfði stefnir ávallt að því að vera í fremstu röð meðal hjúkrunarheimila. Markmiðið er að veita íbúum bestu mögulega þjónustu á hverjum tíma og vera aðlaðandi starfsvettvangur, þar sem hæft starfsfólk er í hverju starfi. Starfsemi, húsnæði og aðbúnaður skal endurskoða reglulega þar sem nýjar hugmyndir og þekkingarþróun verða hafðar að leiðarljósi.
Markmið heimilisins er að hjúkrun og önnur þjónusta sé veitt á faglegan og ábyrgan hátt. Heilsufarsmat þarf að vera heildrænt, hjúkrunaráætlun skráð og háð stöðugri endurskoðun með það að markmiði að auka og viðhalda sjálfsbjargargetu íbúa og getu hans til að laga sig að breyttum aðstæðum. Öryggi íbúa og vellíðan er í fyrirrúmi ásamt því að viðhalda sjálfsmynd og sjálfsvirðingu þrátt fyrir hrakandi heilsufar og færnitap.


Hugmyndafræði
Hjúkrun byggist á hjúkrunarfræðilegum kenningum, reynsluþekkingu og þeim ramma sem innri og ytri aðstæður setja heimilinu.
Hugmyndafræði hjúkrunarheimila þarf að taka mið af eftirtöldum þáttum:
- Að búa heimilismönnum vistlegt heimili þar sem mannréttindi, mannúð og virðing eru í heiðri höfð.
- Að skapa heimilismönnum öryggi með viðeigandi félagslegum og heilsufarlegum stuðningi.
- Að veita heimilismönnum alla nauðsynlega hjúkrun, umönnun og læknishjálp.
- Að styðja og styrkja sjálfsmynd og sjálfræði heimilismanna.
Stuðningur við einstaklinginn skal miða að því að viðhalda getu hans, virkni og færni eins og kostur er með hans eigin þátttöku, hjúkrun, aðhlynningu, þjálfun, læknishjálp og hjálpartækjum og aðstoða hann við að takast á við breyttar aðstæður (Velferðarráðuneytið,2013, Kröfulýsing að öldrunarþjónustu).
Aðstaða og staðsetning
Höfði er staðsettur við Sólmundarhöfða 5 á Akranesi og var tekinn í notkun í þremur áföngum. Sá fyrsti 2. febrúar 1978, annar áfangi á árunum 1990-1992 og þriðji áfangi á árunum 2012 og 2013. Höfði á allt húsnæðið sjálfur.
Á heimilinu búa 75 íbúar, þar af 2 í skammtímarýmum. Íbúðir eru staðsettar á þremur hæðum og skiptast niður á nokkur minni heimili innan Höfða. Á 1. hæð eru heimilin Innri-Hólmur og Ytri-Hólmur, á 2. hæð er Jaðar og á 3. hæð eru Vík og Tindur. Tvær lyftur eru í húsinu og neyðarkallkerfi úr öllum íbúðum og vistarverum.
Í sameiginlega rými hússins á fyrstu hæð er m.a. eldhús, matsalur, samkomusalur, dagdvöl, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hárgreiðslustofa og fótsnyrting. Þá er þar einnig sérstakt rými fyrir dagdvöl og skrifstofur. Í kjallara er m.a. starfsmannaaðstaða, þvottahús, ræsting og aðstaða umsjónarmanns fasteigna.
Á 3. hæð er bókanlegt sameiginlegt rými með léttri eldhúsaðstöðu, áhöldum, stólum og borðum þar sem hægt er að halda litlar samkomur yfir daginn sem erfitt er að koma fyrir í íbúðunum, t.d. kaffiboð fyrir fjölskyldu eða vini.